Góðann daginn!
Þá er komið að þessu langþráða og eftirvænta næsta blogg. Hér
kemur það! Þessi undanfarni mánuður eða svo er búinn að vera í
mikilli lægð hjá okkur, ég og Sverrir í samræmdu prófunum en þau
eru reyndar löngu liðin. Það er samt engin afsökun fyir leti okkar,
sem er bara hrein leti. En nóg um það, bloggið er aftur byrjað! Þá
skulum við byrja á að koma hinu augljósa úr vegi, Maggi og Helen
eru ennþá saman, ég og Rakel líka. Þá er bara spurningin, hvar
stendur Sverrir? Þetta er mál milli hans og...einhverrar. Allavega
er skólinn búinn!(finally) og þá tekur sumarið við og þar á meðal
sumarvinnur, prívat og persónulega þá get ég sagt að ég er
uppvaskari á Bautanum, Magnús einhver bölvaður sveitadurgur og ég
hreinlega þori ekki að fara með atvinnu Sverris. Áður en að skólinn
kláraðist fórum við að sjálfsögðu í okkar langþráða skólaferðalag!
Það var hreint út sagt magnað, uber-awesome if you will. Við
byrjuðum á því að leggja land undir fót á einhverjum stað sem ég
man ekki hvað heitir en þar var hinn verulega skemmtilegi
Adrenalíngarður. Það var velgaman þar sko, okkur var skipt upp í
nokkra hópa og byrjaði hópurinn minn á að klífa einhvern
fáránlegann staur... Mér líkaði lítið við hann get ég sagt ykkur!
En við fórum í aðra þraut og svo í svo í pendúllinn! Það var
geðveikt gaman! Þá stóð maður á sérstökum stað í þessu albelti og
festur í eina tvo kapla sem lá eitthvert aftur fyrir mann og yfir
einhverja trapisu og að hópnum þar sem hópurinn hélt í endann og
bara hljóp með kaðalinn og mann sjálfann í eftirdragi þar sem maður
skaust eitthvað x - langt uppí loftið! Fkn gaman sko!
En við fórum líka í Paintball sem var svo ógeðslega gaman! Svo
mikið adrenarlínkick! Ég var að minnsta kosti alveg á ystu nöf! En
þegar að við vorum orðin öll vel gul þá fórum við í Bláa Lónið sem
var illa þægilegt! Maður var eitthvað svo agalega náttúrulegur og
fínn með þetta hvíta brundleðju sull í smettinu!
Það var samt
svoldið þægilegt. En þegar að við vorum búin í Lóninu fórum við
yfir í rvk á Pizza Hut og fengum fínustu flatböku! Hún var illa sæt
maður!