Nivea 4 life!

29.04.2007 01:58:24 / nivea-crew

Daginn...

Sælt og blessað.

 

Jæja, nú fer að líða að hinum samræmdu, you heard me! SAMRÆMDU!

 Já, samræmdu prófin eru í heild sinni nokkurnveginn útgáfa af Satan. Eða svoooonnaa...

 

En allavega er ég bara að skrifa þetta til að láta ykkur vita, að það verða komnar myndir hérna og svona dót strax eftir samræmdu. Þ.e um leið og við fáum að smella myndum af og gera eitthvað skemmtilegt!

En örvæntið ekki gott fólk. Þetta keeeeeeeeeeeeeeeeemur! :D

  --Sverrir Nivea 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 22:01:40 / nivea-crew

Það er komið á nýtt blogg!

Daginn hér. Danni hér hefur yfirhöndina og mun vera að skrifa sína frásögn í dag. Þessa dagana standa vorprófin yfir hjá 10 bekk og hafa liðið 2 af 4 og eru þau Enskan og Íslenskan. Enskan var nú létt en íslenskan var nú alveg að fara með marga útí gönur. Prófið hérna á morgun(miðvikudaginn 18 apr.) verður stærðfræðin og hefur hún verið að flækjast fyrir sumum en bara fjandi vel hjá öðrum. En gleðifréttirnar að þessu sinni skólalega séð er að það er frí á fimmtudaginn!:D (sumardagurinn fyrsti) En skólahreystsúrslitin eru á næsta leyti og fær hins vegar einungis 10undi bekkur að fara á það nema að eini yngsti keppandinn fær að fara:D og skilst mér frá Jóa að hún fái að hafa með sér uppað 6 yngri nemendum(Byrjið að sleikja hana upp ef þið viljið með!) En annars er fátt annað eftir að bæti við skólahreystið en gangi ykkur vel Binni, Eyþór, Inga Rakel og Hafdís!

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 19:07:11 / nivea-crew

!

Góðan daginn.

 

Jæja, við hérna í Nivea-Crew þurfum að fara að plögga myndir og svona. Við munum drífa í því sem fyrst í að hafa Nivea kveld, og taka myndir og henda svo hingað inn. :P

Eins og sagt er þá kemur þetta með kalda vatninu. En þetta var bara svona smá "tilkynning" og við munum reyna að drífa í þessu!

Takk fyrir, Sverrir Nivea-- 


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 15:27:03 / nivea-crew

Góð helgi sko ;)

þessi helgi er buinn að vera æðisleg.....like á laugardaginn þá var ég á hljomsveitaræfingu heima hjá Bene að æfa með hljomsveitinni Mordlust sem var geðveikt pöntuðum okkur eina væna búkollu á greifanum og svona og spiluðum við mikið af svartmálmi :)+ það að hun Iðunn okkar átti ammæli og við óskum henni til hamingju með það lov ja ;)....Sunnudagurinn var lika frábær,ég vaknaði frekar snemma til að fara taka mig til og fórum í matarboð til ömmu og afa :) fengum þar dýrindis mat og alles,hjelt ég svo heim á leið og fékk Dag Bollason og Bene til að koma til min og við vorum að horfa á Friends og svona en svo svona seinni partinn sem sagt um kveldið fór maðr náttlega að taka sig til fyrir kveldið ;) svo skellti maðr sér á palla :P haha og ég komst inn sem var fiinnt en jahh ég og Nivea crewið vorum þanna og dönsuðum heldur betur og svo hittum við Robba trommara úr Chimera og dönsuðum við hann og lika Benna trommo...........þetta var bara geðveikt ball og takk fyrir kvöldið allir sem voru með mér ;**







Takk fyrir mig kv.MAggih Nivea;*


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 22:10:52 / nivea-crew

Kominn tími á nýtt??

Daginn gott fólk.

Góður dagur í dag, föstudagurinn langi. Nú, hér er það Sverrir sem situr við lyklana í þetta skiptið með hann Daníel í shotgunninu. Vikan hjá mér var skemmtileg og fljót að líða. Fór suður þann 30. mars, í ógeðis veðri með Magga Nivea sem ferðafélaga, og var sú ferð skemmtileg. Komum suður í rokið og ógeðið! :D

En á föstudeginum var bara farið í heimsóknir og svoleiðis. Svo á laugardeginum var auðvitað farið í Smáralindina! Ójá! Það var stuð, verzlað alveg hreint út og inn. Svo seinna á daginn fór ég í fermingarveislu til frænda míns. Sú veisla var góð og ekki var maturinn sem verstur. Svo var bara farið heim um svona 7 leytið og legið í leti þangað til að ég fór og hitti Magga Nivea og Öddu vinkonu hans og við fórum í bíó.

Á sunnudeginum fór ég í aðra fermingarveislu. Endalausar veislur. Þá var hann Óliver að fermast, sú veisla var eins og hin. Gott fóður, mikið étið. Og náttúrulega farið beint heim í leti eftir það! :D

Mánudagurinn var hinn venjulegasti, man voða lítið eftir því sem ég gerði, svo að ég ætla ekkert að bulla neitt um hann að svo stöddu.

Þriðjudagurinn var skemmtilega-skemmtilegur, fórum í heimsókn niður á Reykjanes að heimsækja vinafólk okkar sem að býr þar. Sú heimsókn var einkar skemmtileg að vissu leyti, jafnt sem öðru. Þar átum við flatbökur og ýmislegt annað góðgæti. Síðan eftir þá heimsókn fórum við í enn aðra, til frændfólks okkar. Skemmtileg ferðasaga ekki satt ? Endalausar heimsóknir, takk fyrir kærlega.

Eftir þriðjudaginn kom auðvitað miðvikudagur. Þar var ég bara með frænda mínum að horfa á spólur og svona fínerí. Svo var bara farið seint að sofa og vaknað um hádegisbil á fimmtudeginum. Þá var farið í Kringluna og Smáralindina, skoðað og svona, gaman það!
Eftir að hafa verzlað, og farið heim, var haldið í matarboð. Gott nautakjöt þar ferð, með sykruðum kartöflum, gulum og grænum baunum, sveppa sósu og jólaöli öllu blandað saman uppí í forugum kjöftum svangra ferðalanga!
Eftir þennan dýrindiskvöldverð fórum við í heimsókn, og svo bara heima að sofa! Því langt ferðalag fyrir höndum daginn eftir.

Á föstudeginum var ræst allt liðið klukkan 7, hent í bílinn og þrykkt norður á bóginn! Komum um eitt leytið í dag. Skemmtileg ferð. En öll ferðin sjálf var hins vegar mjög skemmtileg, og geggjað að hitta allt skyldfólkið sem maður hittir alltof sjaldan! :D

En takk fyrir mig í bili. Og einnig komið að einhverjum öðrum að blogga. En veriði bless. 

         Sverrir Nivea---
 


» 4 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill
Tenglar
Klukkan