Nivea 4 life!

27.03.2007 21:53:20 / nivea-crew

Dagurinn!

Dagurinn í dag hefur verið alveg hin ágætasti. Skóladagurinn var í venjulegri kantinum, en úr því að gleðivikan sé víst gengin í garð þá var um að gera eina sniðuga gleðihrúgu í frímínútunum og skemmtu sér margir í henni. Okkar yngsti meðlimur lét nærrum því lífið þar að eigin sögn!:O Eftir skóla fór ég, Magnús og Bene í ræktina bara og skelltum okkur í pottinn eftir á og drösluðum okkur svo heim í rólegheitunum. Eftir það var fátt annað að gera en að skutla sér í sófann og horfa á sjónvarpið.

Þessa helgina er víst komið páskafrí og ætla þar mjög margir að skella sér suður. Þar á meðal Magnús og Sverrir. En fyrir ykkur brettamennina þá er eitt stykki session uppí Hlíðarfjalli laugardaginn 31 mars og eru þá komin 10 ný rail og verður gert einhverja palla og skorið verður pipe-ið! Skemmtið ykkur þar.

Þar sem fátt er eftir að segja í dag en gleðilega páska og hafið það gott í páskafríinu!

Danni Nivea--

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 23:05:20 / nivea-crew

Tilraun 3!!

DAGINN...

 

Halló, Sverrir við lyklana hérna.. ;D

Þessi mánudagur er búinn að vera svona allt í lagi. Skólinn til 4, og svo heim, hjólið í viðgerð, matur og síðast en ekki síst opið hús. Samt sem áður er þessu dagur búinn að vera einkar langur, satt best að segja. En já já, svona allt í lagi í skólanum. Opna húsið var auðvitað stuð, bara spilað og chillað. 

 Nú, svo er ég að fara suður á föstudaginn. Verður geggjað stuð þá! Er að fara suður í fermingar og svona. Verður verzlað og skemmt sér eins og ég veit ekki hvað. Ekki nema 4 dagar þangað til! :D
En þetta er bara svona blogg eitthvað útí *nivea* bláinn... Svo að ég ætla að fara segja þetta gott. Takk fyrir mig. Sverrir--  

Svo kemur mynd af okkyr Magga að dreypa á kaffi og ögn mjólkurlögg!

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 04:29:44 / nivea-crew

!!!!

Já það er rétt kæru vinir og vandamenn. Við höfum hér með stofnað síðuna www.blog.central.is/nivea-crew. Við munum hér með í nánunstu framtíð setja inn myndir og allt sem þeim fylgja. Svo tippikal bloggsíðu-stúss, ef svo má að orði komast. Nú við erum 3 í þessu núna, Sverrir, Daníel og Magnús, betur þekktir sem Pissilissi, Danni og Maggi. Nú, markmiðið er að ná heimsyfirráðum í heimi snyrtivara, og styðja Nivea alveg í gegn!!

Við notum allir Nivea allt! Nivea inniskó, nivea klósettpappír (mjög mjúkur viðkomu, og með góðri lykt), nivea glös (smurð varasalva) og svo allt sem nivea mögulega gerir. Við búum á Akureyri og erum 15-16 ára gamlir. Nú ætlum við að segja þetta gott, takk fyrir okkur. Sverrir, Magnús og Daníel.

 

NIVEA 4 LIFE!

 

 


» 21 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill
Klukkan
Tenglar