Nivea 4 life!

06.04.2007 22:10:52 / nivea-crew

Kominn tími á nýtt??

Daginn gott fólk.

Góður dagur í dag, föstudagurinn langi. Nú, hér er það Sverrir sem situr við lyklana í þetta skiptið með hann Daníel í shotgunninu. Vikan hjá mér var skemmtileg og fljót að líða. Fór suður þann 30. mars, í ógeðis veðri með Magga Nivea sem ferðafélaga, og var sú ferð skemmtileg. Komum suður í rokið og ógeðið! :D

En á föstudeginum var bara farið í heimsóknir og svoleiðis. Svo á laugardeginum var auðvitað farið í Smáralindina! Ójá! Það var stuð, verzlað alveg hreint út og inn. Svo seinna á daginn fór ég í fermingarveislu til frænda míns. Sú veisla var góð og ekki var maturinn sem verstur. Svo var bara farið heim um svona 7 leytið og legið í leti þangað til að ég fór og hitti Magga Nivea og Öddu vinkonu hans og við fórum í bíó.

Á sunnudeginum fór ég í aðra fermingarveislu. Endalausar veislur. Þá var hann Óliver að fermast, sú veisla var eins og hin. Gott fóður, mikið étið. Og náttúrulega farið beint heim í leti eftir það! :D

Mánudagurinn var hinn venjulegasti, man voða lítið eftir því sem ég gerði, svo að ég ætla ekkert að bulla neitt um hann að svo stöddu.

Þriðjudagurinn var skemmtilega-skemmtilegur, fórum í heimsókn niður á Reykjanes að heimsækja vinafólk okkar sem að býr þar. Sú heimsókn var einkar skemmtileg að vissu leyti, jafnt sem öðru. Þar átum við flatbökur og ýmislegt annað góðgæti. Síðan eftir þá heimsókn fórum við í enn aðra, til frændfólks okkar. Skemmtileg ferðasaga ekki satt ? Endalausar heimsóknir, takk fyrir kærlega.

Eftir þriðjudaginn kom auðvitað miðvikudagur. Þar var ég bara með frænda mínum að horfa á spólur og svona fínerí. Svo var bara farið seint að sofa og vaknað um hádegisbil á fimmtudeginum. Þá var farið í Kringluna og Smáralindina, skoðað og svona, gaman það!
Eftir að hafa verzlað, og farið heim, var haldið í matarboð. Gott nautakjöt þar ferð, með sykruðum kartöflum, gulum og grænum baunum, sveppa sósu og jólaöli öllu blandað saman uppí í forugum kjöftum svangra ferðalanga!
Eftir þennan dýrindiskvöldverð fórum við í heimsókn, og svo bara heima að sofa! Því langt ferðalag fyrir höndum daginn eftir.

Á föstudeginum var ræst allt liðið klukkan 7, hent í bílinn og þrykkt norður á bóginn! Komum um eitt leytið í dag. Skemmtileg ferð. En öll ferðin sjálf var hins vegar mjög skemmtileg, og geggjað að hitta allt skyldfólkið sem maður hittir alltof sjaldan! :D

En takk fyrir mig í bili. Og einnig komið að einhverjum öðrum að blogga. En veriði bless. 

         Sverrir Nivea---
 

Óli D. skrifaði
jahá, ég sé að þetta hefur verið skemmtileg ferð eins og þú segir. Alltaf gaman í fermingaveislum, að éta það er að segja hehe. fínt blogg annars ;) já og endilega að setja fleiri myndir inná, sá nokkrar hjá magga þar sem þið voruð heima hjá danna. Good stuff ;)
MAgghih Nivea skrifaði
hey svörr geeeðð blogg sko en verðum að fara henda myndum inna :D bæjj sjáumst á eftir (L)
katrín skrifaði
klikkað blogg hjá þér beib. . . sjáumst;************************
sigrún skrifaði
gleðilega páska :) gott blogg og við sjáumst !;*

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill
Tenglar
Klukkan