Daginn hér. Danni hér hefur yfirhöndina og
mun vera að skrifa sína frásögn í dag. Þessa dagana standa
vorprófin yfir hjá 10 bekk og hafa liðið 2 af 4 og eru þau
Enskan og Íslenskan. Enskan var nú létt en íslenskan var nú
alveg að fara með marga útí gönur. Prófið hérna á
morgun(miðvikudaginn 18 apr.) verður stærðfræðin og hefur hún
verið að flækjast fyrir sumum en bara fjandi vel hjá öðrum.
En gleðifréttirnar að þessu sinni skólalega séð er að það er
frí á fimmtudaginn!
(sumardagurinn fyrsti) En
skólahreystsúrslitin eru á næsta leyti og fær hins vegar
einungis 10undi bekkur að fara á það nema að eini yngsti
keppandinn fær að fara
og skilst mér frá Jóa að hún fái að
hafa með sér uppað 6 yngri nemendum(Byrjið að sleikja hana
upp ef þið viljið með!) En annars er fátt annað eftir að bæti
við skólahreystið en gangi ykkur vel Binni, Eyþór, Inga Rakel
og Hafdís!