Nivea 4 life!

27.03.2007 21:53:20 / nivea-crew

Dagurinn!

Dagurinn í dag hefur verið alveg hin ágætasti. Skóladagurinn var í venjulegri kantinum, en úr því að gleðivikan sé víst gengin í garð þá var um að gera eina sniðuga gleðihrúgu í frímínútunum og skemmtu sér margir í henni. Okkar yngsti meðlimur lét nærrum því lífið þar að eigin sögn!:O Eftir skóla fór ég, Magnús og Bene í ræktina bara og skelltum okkur í pottinn eftir á og drösluðum okkur svo heim í rólegheitunum. Eftir það var fátt annað að gera en að skutla sér í sófann og horfa á sjónvarpið.

Þessa helgina er víst komið páskafrí og ætla þar mjög margir að skella sér suður. Þar á meðal Magnús og Sverrir. En fyrir ykkur brettamennina þá er eitt stykki session uppí Hlíðarfjalli laugardaginn 31 mars og eru þá komin 10 ný rail og verður gert einhverja palla og skorið verður pipe-ið! Skemmtið ykkur þar.

Þar sem fátt er eftir að segja í dag en gleðilega páska og hafið það gott í páskafríinu!

Danni Nivea--

 

Óli D. skrifaði
þrusu blogg danni ;)haha alltaf gaman í gleðihrúgu
katrín skrifaði
öss ég er ennþá að jafna mig eftir sundið í gær. . .
sigrún skrifaði
gott blogg daníel :) við sjáumst
Fanney skrifaði
flott blogg, en tími á nýtt:)
Búi skrifaði
Gamli =D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill
Tenglar
Klukkan