Nivea 4 life!

22.08.2007 02:14:03 / nivea-crew

Góðir hálsar takið eftir!

Þá er komið að því. Nivea - Crew ætlar að gera aðra tilraun til þess að halda einhverju lífi í þessari blessuðu síðu.

Við komum til með að halda slúðrinu uppi, og blogga reglulega. Þetta blogg verður í styttri kantinum því að þetta er aðeins tilkynning. Verið viðbúin meiru!

En þá er kominn tími á að fara að lúlla. Veriði sæl.

 

"Fleira er það ekki sinni, verið þið sæl." - Sigurður H. Richter R.I.P.

                                                            Nýjasta tækni og vísindi. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 15:06:43 / nivea-crew

AfmælisBlogg

 

         Heiii þúst það er afmælisstrákur hér á ferð :O og auðvitað er það enginn annar er hann

         Sverge,Pissilissi,Sverrir Nivea þið ráiðið hvað þið kallið hann, en hér er mynd af kallinum

 

 

 

                   

 

             Kv.         Arnór,Danni,Maggi

        Nivea

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 22:28:19 / nivea-crew

VerlzÓ

 

 Jæja nú nálgast versló, það verður brjáluð stemming á DJpaaalla,,allir að mæta :P 1000 kall í pennanum glérártorgi en 1500 í inngangi

 

SVo á Sunnudeginum verður NoRequest og auðvitað mæta allir þangað líka, en hef ekki hugmynd um verð þangað inn...

...en ég nenni ekki að blogga meir,,, ég segi að hinir meðlimir Nivea fari að blogga meir :O     

 

Sjáumst á Paaaallaa :D

 

Arnór Nivea


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 02:14:41 / nivea-crew

jæja tilraun 1 :D

 

                       Faaawkin blog

 

Heyrðu jáá... ég er ekkert sérlega góður í þessu en verður maður ekki að reyna, byrjum nú á því að þakka Nivea fyrir að bjóða mér í þetta undursamlega Crew, en nú mun allt gerast því Arnór Nivea ætlar að lífga upp á þessa síðu með skemmtilegum myndum og bloggum en nú hef ég röflað nóg og kveð að sinni.

 

Arnór Niveahh

                                                     Lengi lifi                               


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 14:10:06 / nivea-crew

Kominn nýr meðlimur takk fyrir kærlega

Jæja krakkar minir nú er komið að því,það er kominn nýr meðlimur í Nivea crew...Hann ber að kalla nafnið Arnór..í stuttu máli hann er mjög sætur og krúttlegur strákur og hann er ný buinn með 10 bekk í síðuskóla og jamm svona er það ..ég ætla bara að hafa þetta stutt og so er hjerna mynd af honum krakkar ;* takk fyrir mig

-MAggihh Nivea

---------------------------->;);** elskum þig ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 03:48:30 / nivea-crew

Loksins komið á nýtt!!

Góðann daginn!

Þá er komið að þessu langþráða og eftirvænta næsta blogg. Hér kemur það! Þessi undanfarni mánuður eða svo er búinn að vera í mikilli lægð hjá okkur, ég og Sverrir í samræmdu prófunum en þau eru reyndar löngu liðin. Það er samt engin afsökun fyir leti okkar, sem er bara hrein leti. En nóg um það, bloggið er aftur byrjað! Þá skulum við byrja á að koma hinu augljósa úr vegi, Maggi og Helen eru ennþá saman, ég og Rakel líka. Þá er bara spurningin, hvar stendur Sverrir? Þetta er mál milli hans og...einhverrar. Allavega er skólinn búinn!(finally) og þá tekur sumarið við og þar á meðal sumarvinnur, prívat og persónulega þá get ég sagt að ég er uppvaskari á Bautanum, Magnús einhver bölvaður sveitadurgur og ég hreinlega þori ekki að fara með atvinnu Sverris. Áður en að skólinn kláraðist fórum við að sjálfsögðu í okkar langþráða skólaferðalag! Það var hreint út sagt magnað, uber-awesome if you will. Við byrjuðum á því að leggja land undir fót á einhverjum stað sem ég man ekki hvað heitir en þar var hinn verulega skemmtilegi Adrenalíngarður. Það var velgaman þar sko, okkur var skipt upp í nokkra hópa og byrjaði hópurinn minn á að klífa einhvern fáránlegann staur... Mér líkaði lítið við hann get ég sagt ykkur! En við fórum í aðra þraut og svo í svo í pendúllinn! Það var geðveikt gaman! Þá stóð maður á sérstökum stað í þessu albelti og festur í eina tvo kapla sem lá eitthvert aftur fyrir mann og yfir einhverja trapisu og að hópnum þar sem hópurinn hélt í endann og bara hljóp með kaðalinn og mann sjálfann í eftirdragi þar sem maður skaust eitthvað x - langt uppí loftið! Fkn gaman sko!

En við fórum líka í Paintball sem var svo ógeðslega gaman! Svo mikið adrenarlínkick! Ég var að minnsta kosti alveg á ystu nöf! En þegar að við vorum orðin öll vel gul þá fórum við í Bláa Lónið sem var illa þægilegt! Maður var eitthvað svo agalega náttúrulegur og fínn með þetta hvíta brundleðju sull í smettinu!:D Það var samt svoldið þægilegt. En þegar að við vorum búin í Lóninu fórum við yfir í rvk á Pizza Hut og fengum fínustu flatböku! Hún var illa sæt maður!


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 01:58:24 / nivea-crew

Daginn...

Sælt og blessað.

 

Jæja, nú fer að líða að hinum samræmdu, you heard me! SAMRÆMDU!

 Já, samræmdu prófin eru í heild sinni nokkurnveginn útgáfa af Satan. Eða svoooonnaa...

 

En allavega er ég bara að skrifa þetta til að láta ykkur vita, að það verða komnar myndir hérna og svona dót strax eftir samræmdu. Þ.e um leið og við fáum að smella myndum af og gera eitthvað skemmtilegt!

En örvæntið ekki gott fólk. Þetta keeeeeeeeeeeeeeeeemur! :D

  --Sverrir Nivea 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 22:01:40 / nivea-crew

Það er komið á nýtt blogg!

Daginn hér. Danni hér hefur yfirhöndina og mun vera að skrifa sína frásögn í dag. Þessa dagana standa vorprófin yfir hjá 10 bekk og hafa liðið 2 af 4 og eru þau Enskan og Íslenskan. Enskan var nú létt en íslenskan var nú alveg að fara með marga útí gönur. Prófið hérna á morgun(miðvikudaginn 18 apr.) verður stærðfræðin og hefur hún verið að flækjast fyrir sumum en bara fjandi vel hjá öðrum. En gleðifréttirnar að þessu sinni skólalega séð er að það er frí á fimmtudaginn!:D (sumardagurinn fyrsti) En skólahreystsúrslitin eru á næsta leyti og fær hins vegar einungis 10undi bekkur að fara á það nema að eini yngsti keppandinn fær að fara:D og skilst mér frá Jóa að hún fái að hafa með sér uppað 6 yngri nemendum(Byrjið að sleikja hana upp ef þið viljið með!) En annars er fátt annað eftir að bæti við skólahreystið en gangi ykkur vel Binni, Eyþór, Inga Rakel og Hafdís!

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 19:07:11 / nivea-crew

!

Góðan daginn.

 

Jæja, við hérna í Nivea-Crew þurfum að fara að plögga myndir og svona. Við munum drífa í því sem fyrst í að hafa Nivea kveld, og taka myndir og henda svo hingað inn. :P

Eins og sagt er þá kemur þetta með kalda vatninu. En þetta var bara svona smá "tilkynning" og við munum reyna að drífa í þessu!

Takk fyrir, Sverrir Nivea-- 


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 15:27:03 / nivea-crew

Góð helgi sko ;)

þessi helgi er buinn að vera æðisleg.....like á laugardaginn þá var ég á hljomsveitaræfingu heima hjá Bene að æfa með hljomsveitinni Mordlust sem var geðveikt pöntuðum okkur eina væna búkollu á greifanum og svona og spiluðum við mikið af svartmálmi :)+ það að hun Iðunn okkar átti ammæli og við óskum henni til hamingju með það lov ja ;)....Sunnudagurinn var lika frábær,ég vaknaði frekar snemma til að fara taka mig til og fórum í matarboð til ömmu og afa :) fengum þar dýrindis mat og alles,hjelt ég svo heim á leið og fékk Dag Bollason og Bene til að koma til min og við vorum að horfa á Friends og svona en svo svona seinni partinn sem sagt um kveldið fór maðr náttlega að taka sig til fyrir kveldið ;) svo skellti maðr sér á palla :P haha og ég komst inn sem var fiinnt en jahh ég og Nivea crewið vorum þanna og dönsuðum heldur betur og svo hittum við Robba trommara úr Chimera og dönsuðum við hann og lika Benna trommo...........þetta var bara geðveikt ball og takk fyrir kvöldið allir sem voru með mér ;**







Takk fyrir mig kv.MAggih Nivea;*


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 22:10:52 / nivea-crew

Kominn tími á nýtt??

Daginn gott fólk.

Góður dagur í dag, föstudagurinn langi. Nú, hér er það Sverrir sem situr við lyklana í þetta skiptið með hann Daníel í shotgunninu. Vikan hjá mér var skemmtileg og fljót að líða. Fór suður þann 30. mars, í ógeðis veðri með Magga Nivea sem ferðafélaga, og var sú ferð skemmtileg. Komum suður í rokið og ógeðið! :D

En á föstudeginum var bara farið í heimsóknir og svoleiðis. Svo á laugardeginum var auðvitað farið í Smáralindina! Ójá! Það var stuð, verzlað alveg hreint út og inn. Svo seinna á daginn fór ég í fermingarveislu til frænda míns. Sú veisla var góð og ekki var maturinn sem verstur. Svo var bara farið heim um svona 7 leytið og legið í leti þangað til að ég fór og hitti Magga Nivea og Öddu vinkonu hans og við fórum í bíó.

Á sunnudeginum fór ég í aðra fermingarveislu. Endalausar veislur. Þá var hann Óliver að fermast, sú veisla var eins og hin. Gott fóður, mikið étið. Og náttúrulega farið beint heim í leti eftir það! :D

Mánudagurinn var hinn venjulegasti, man voða lítið eftir því sem ég gerði, svo að ég ætla ekkert að bulla neitt um hann að svo stöddu.

Þriðjudagurinn var skemmtilega-skemmtilegur, fórum í heimsókn niður á Reykjanes að heimsækja vinafólk okkar sem að býr þar. Sú heimsókn var einkar skemmtileg að vissu leyti, jafnt sem öðru. Þar átum við flatbökur og ýmislegt annað góðgæti. Síðan eftir þá heimsókn fórum við í enn aðra, til frændfólks okkar. Skemmtileg ferðasaga ekki satt ? Endalausar heimsóknir, takk fyrir kærlega.

Eftir þriðjudaginn kom auðvitað miðvikudagur. Þar var ég bara með frænda mínum að horfa á spólur og svona fínerí. Svo var bara farið seint að sofa og vaknað um hádegisbil á fimmtudeginum. Þá var farið í Kringluna og Smáralindina, skoðað og svona, gaman það!
Eftir að hafa verzlað, og farið heim, var haldið í matarboð. Gott nautakjöt þar ferð, með sykruðum kartöflum, gulum og grænum baunum, sveppa sósu og jólaöli öllu blandað saman uppí í forugum kjöftum svangra ferðalanga!
Eftir þennan dýrindiskvöldverð fórum við í heimsókn, og svo bara heima að sofa! Því langt ferðalag fyrir höndum daginn eftir.

Á föstudeginum var ræst allt liðið klukkan 7, hent í bílinn og þrykkt norður á bóginn! Komum um eitt leytið í dag. Skemmtileg ferð. En öll ferðin sjálf var hins vegar mjög skemmtileg, og geggjað að hitta allt skyldfólkið sem maður hittir alltof sjaldan! :D

En takk fyrir mig í bili. Og einnig komið að einhverjum öðrum að blogga. En veriði bless. 

         Sverrir Nivea---
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 21:53:20 / nivea-crew

Dagurinn!

Dagurinn í dag hefur verið alveg hin ágætasti. Skóladagurinn var í venjulegri kantinum, en úr því að gleðivikan sé víst gengin í garð þá var um að gera eina sniðuga gleðihrúgu í frímínútunum og skemmtu sér margir í henni. Okkar yngsti meðlimur lét nærrum því lífið þar að eigin sögn!:O Eftir skóla fór ég, Magnús og Bene í ræktina bara og skelltum okkur í pottinn eftir á og drösluðum okkur svo heim í rólegheitunum. Eftir það var fátt annað að gera en að skutla sér í sófann og horfa á sjónvarpið.

Þessa helgina er víst komið páskafrí og ætla þar mjög margir að skella sér suður. Þar á meðal Magnús og Sverrir. En fyrir ykkur brettamennina þá er eitt stykki session uppí Hlíðarfjalli laugardaginn 31 mars og eru þá komin 10 ný rail og verður gert einhverja palla og skorið verður pipe-ið! Skemmtið ykkur þar.

Þar sem fátt er eftir að segja í dag en gleðilega páska og hafið það gott í páskafríinu!

Danni Nivea--

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 23:05:20 / nivea-crew

Tilraun 3!!

DAGINN...

 

Halló, Sverrir við lyklana hérna.. ;D

Þessi mánudagur er búinn að vera svona allt í lagi. Skólinn til 4, og svo heim, hjólið í viðgerð, matur og síðast en ekki síst opið hús. Samt sem áður er þessu dagur búinn að vera einkar langur, satt best að segja. En já já, svona allt í lagi í skólanum. Opna húsið var auðvitað stuð, bara spilað og chillað. 

 Nú, svo er ég að fara suður á föstudaginn. Verður geggjað stuð þá! Er að fara suður í fermingar og svona. Verður verzlað og skemmt sér eins og ég veit ekki hvað. Ekki nema 4 dagar þangað til! :D
En þetta er bara svona blogg eitthvað útí *nivea* bláinn... Svo að ég ætla að fara segja þetta gott. Takk fyrir mig. Sverrir--  

Svo kemur mynd af okkyr Magga að dreypa á kaffi og ögn mjólkurlögg!

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 04:29:44 / nivea-crew

!!!!

Já það er rétt kæru vinir og vandamenn. Við höfum hér með stofnað síðuna www.blog.central.is/nivea-crew. Við munum hér með í nánunstu framtíð setja inn myndir og allt sem þeim fylgja. Svo tippikal bloggsíðu-stúss, ef svo má að orði komast. Nú við erum 3 í þessu núna, Sverrir, Daníel og Magnús, betur þekktir sem Pissilissi, Danni og Maggi. Nú, markmiðið er að ná heimsyfirráðum í heimi snyrtivara, og styðja Nivea alveg í gegn!!

Við notum allir Nivea allt! Nivea inniskó, nivea klósettpappír (mjög mjúkur viðkomu, og með góðri lykt), nivea glös (smurð varasalva) og svo allt sem nivea mögulega gerir. Við búum á Akureyri og erum 15-16 ára gamlir. Nú ætlum við að segja þetta gott, takk fyrir okkur. Sverrir, Magnús og Daníel.

 

NIVEA 4 LIFE!

 

 


» 21 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
28. janúar 2012
RSS tengill
Klukkan
Tenglar